Nokia 5130 XpressMusic - Forrit sem keyra í bakgrunninum

background image

Forrit sem keyra í bakgrunninum

Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma

rafhlöðunnar.

3. Símtöl

Símtöl – hringt og svarað

Til að hringja slærðu inn símanúmerið, ásamt lands- og svæðisnúmeri ef þess þarf, og

ýtir á hringitakkann. Ýttu á hljóðstyrkshnappana til að stilla hljóðstyrk eyrnatólsins eða

höfuðtólsins meðan á símtali stendur.
Ýttu á hringitakkann til að svara mótteknu símtali. Ýtt er á hætta-takkann til að hafna

símtali.

Hátalari

Hægt er að velja Hátalari eða Símtól til að nota hátalara eða heyrnartól símans meðan

talað er í hann, sé um slíkt að ræða.

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því

hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.

Flýtivísar símtala

Til að tengja símanúmer við einn af hraðvalstökkunum (2 til 9) velurðu Valmynd >

Tengiliðir > Hraðvals-númer, flettir að númeri og velur Velja. Sláðu inn símanúmer

eða veldu Leita og svo vistaðan tengil.
Kveikt er á hraðvali með því að velja Valmynd > Stillingar > Símtals-stillingar >

Hraðval > Virkt.