
Upprunalegar stillingar
Til að nota upprunalegar stillingar símans velurðu Valmynd > Stillingar >
Núllstilla og úr eftirfarandi valkostum:
● Endursetja still. eing. — til að núllstilla símann án þess að eyða persónulegum
gögnum.
● Núllstilla allt — til að núllstilla símann og eyða öllum persónulegum gögnum (t.d.
tengiliðum, skilaboðum og hljóð- og myndskrám).
10. Valmynd símafyrirtækis
Aðgangur að þjónustu sem símafyrirtækið býður upp á. Hafa skal samband við
símafyrirtækið til að fá nánari upplýsingar. Símafyrirtækið getur uppfært þessa valmynd
með þjónustuboðum.
11. Gallerí
Síminn styður notkunarleyfakerfi (Digital Rights Management, DRM) til varnar aðfengnu
efni. Ætíð skal kanna afhendingarskilmála alls efnis og opnunarlykla áður en það er sótt
þar sem það getur verið háð greiðslu.
Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að
vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að opna efni
sem verndað er með WMDRM 10, OMA DRM 1.0, OMA DRM 1.0 forward lock og OMA DRM
2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur að
biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni
réttindatækni sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess stafræns
varins efnis sem er þegar í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á
notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis
sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.