
Stillingar
Hægt er að stilla mismunandi valkosti símans. Þjónustuveitan kann einnig að senda þér
þessar stillingar.
Veldu Valmynd > Stillingar > Samskipan og svo einhvern eftirfarandi valkosta:
Stillingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
22

● Sjálfgefnar stillingar — til að skoða hvaða þjónustuveitur eru vistaðar í símanum
og velja eina þeirra sem sjálfgefna
● Sjálfg. á í öllum forr. — til að virkja sjálfgefna stillingu fyrir studd forrit
● Helsti aðgangsstaður — til að skoða vistaða aðgangsstaði
● Tengjast þjón.síðu — til að hlaða niður stillingum frá þjónustuveitunni
● Still. f. stjórn. tækis — til að leyfa eða leyfa ekki móttöku hugbúnaðaruppfærslna
fyrir símann. Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja þennan valkost.
● Eigin stillingar — til að bæta handvirkt við nýjum einkaáskriftum fyrir ýmsar
þjónustur og til að virkja þær eða eyða. Til að bæta við nýrri áskrift velurðu Bæta
við eða Valkostir > Bæta við nýjum. Veldu þjónustugerðina og færðu inn
nauðsynlegar breytur. Til að virkja reikning velurðu hann og svo Valkostir >
Virkja.