Nokia 5130 XpressMusic - Skilaboðastillingar

background image

Skilaboðastillingar

Veldu Valmynd > Skilaboð > Skilaboðastill. til að segja upp skilaboðavalkosti.
Almennar stillingar — til að láta símann vista send skilaboð, til að leyfa það að

skrifað sé yfir eldri skilaboð þegar skilaboðaminnið er fullt, og til að setja upp aðra

valkosti fyrir skilaboð

Textaboð — til að leyfa skilatilkynningar, til að setja upp skilaboðamiðstöðvar fyrir

SMS og SMS-tölvupóst, til að velja stafgerðina og til að setja upp aðra valkosti fyrir

textaskilaboð

Margmiðlunarboð — til að leyfa skilatilkynningar, velja útlit

margmiðlunarskilaboða, leyfa móttöku margmiðlunarskilaboða og auglýsinga og til

að setja upp aðra valkosti sem tengjast margmiðlunarskilaboðum

Tölvupóstskeyti — til að leyfa móttöku skilaboða, til að stilla stærð mynda í

tölvupósti og til að stilla aðra valkosti sem tengjast tölvupósti

7. Tengiliðir

Veldu Valmynd > Tengiliðir.
Hægt er að vista nöfn og símanúmer í minni símans og á SIM-kortinu. Í símaminninu

getur þú vistað tengiliði með númerum og texta. Nöfn og númer sem eru vistuð á SIM-

kortinu eru auðkennd með
Til þess að bæta við tengilið velurðu Nöfn > Valkostir > Bæta við tengilið. Til að

bæta upplýsingum við tengilið skaltu ganga úr skugga um að minnið í notkun sé annað

hvort Sími eða Sími og SIM-kort. Veldu Nöfn, flettu að nafni og veldu Upplýs. >

Valkostir > Bæta v. upplýsingum.
Til að leita að tengilið velurðu Nöfn og flettir í gegnum tengiliðalistann eða slærð inn

fyrstu stafina í nafninu.
Til að afrita tengilið á milli minnis símans og SIM-kortsins velurðu Nöfn, flettir að

tengiliðnum og velur Valkostir > Afrita tengilið. Aðeins er hægt að vista eitt

símanúmer með hverju nafni á SIM-korti.
Til að velja SIM-kortið eða minni símans fyrir tengiliði, velja hvernig nöfn og símanúmer

tengiliða birtast, og til að skoða minnisrými fyrir tengiliði velurðu Stillingar.
Hægt er að senda og taka við tengiliðaupplýsingum einstaklings sem nafnspjaldi úr

samhæfu tæki sem styður vCard-staðalinn. Til að senda nafnspjald velurðu Nöfn, leitar

að þeim tengilið sem þú ætlar að senda upplýsingar um og velur Upplýs. >

Valkostir > Senda nafnspjald.