Nokia 5130 XpressMusic - Músíkspilari

background image

Músíkspilari

Síminn þinn inniheldur músíkspilara til að hlusta á lög eða aðrar MP3 eða AAC hljóðskrár.

Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum

hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn

er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Veldu Valmynd > Miðlar > Tónlistarspilari.
Stýrðu tónlistarspilaranum með tökkunum á honum eða með sýndartökkunum á

skjánum.
Til að byrja eða gera hlé á spilun ýtir þú á

.

Til að fara á byrjun þess lags sem er í spilun ýtir þú á

.

Til að fara í fyrra lag ýtir þú tvisvar á

.

Til að fara í næsta lag ýtir þú á

.

Til að spóla til baka núverandi lag ýtir þú á

og heldur honum niðri.

Til að spóla áfram núverandi lag ýtir þú á

og heldur honum niðri.

Til að stilla hljóðstyrkinn ýtir þú á hljóðstyrkshnappana.
Kveikt og slökkt er á músíkspilaranum með því að ýta á #.
Til að leyfa tónlist að spila í bakgrunninum ýtir þú á hætta-takkann. Til að loka

tónlistarspilaranum ýtir þú á og heldur inni hætta-takkanum.

Miðlar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

25

background image

13. Forrit

Í hugbúnaði símans kunna að vera nokkrir leikir og Java-forrit sem eru sérstaklega

hönnuð fyrir Nokia-símann.
Veldu Valmynd > Forrit.
Veldu Leikir eða Safn til að opna leik eða forrit. Flettu að leik eða forriti og veldu

Opna.
Til að skoða hve mikið minni er tiltækt fyrir uppsetningu nýrra leikja og forrita velurðu

Valkostir > Staða minnis.
Veldu Valkostir > Hlaða niður > Hlaða niður leikjum eða Hlaða niður forritum til

að hlaða niður leik eða forriti. Síminn styður J2ME™ Java-forrit. Gakktu úr skugga um að

forritið sé samhæft símanum áður en því er hlaðið niður.

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá traustum

aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java

Verified™.
Hægt er að vista sótt forrit í Gallerí í stað Forrit.

14. Skipuleggjari

Vekjaraklukka

Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Vekjaraklukka.
Til að kveikja eða slökkva á vekjaraklukkunni velurðu Áminning:. Til að stilla tíma

vekjarans velurðu Tími vekjara:. Ef stilla á símann þannig að hann hringi á völdum

dögum vikunnar skaltu velja Endurtaka:. Til að velja eða sérstilla vekjaratón velurðu

Vekjaratónn:. Til að stilla tíma fyrir blund velurðu Lengd blunds:.
Veldu Stöðva til að stöðva vekjarann. Ef þú lætur klukkuna hringja í eina mínútu eða

velur Blunda, slokknar á vekjaraklukkunni í þann tíma sem blundurinn hefur verið

valinn og svo hringir hún aftur.

Dagbók og verkefni

Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Dagbók. Núverandi dagur er með ramma. Ef

færslur eru við daginn er hann feitletraður.
Til að búa til dagbókaratriði flettirðu að dagsetningu þess og velur Valkostir > Skrifa

minnismiða.
Til að skoða minnismiða dagsins velurðu Skoða. Dagbókaratriðum er eytt með því að

velja Valkostir > Eyða atriðum > Öllum atriðum.